Ég get alveg verið sammála því að þetta voru snilldartónleikar. Glöggir (mjög glöggir þá) Hugarar hafa kannski tekið eftir að ég hef eitthvað reynt að koma þessu að enda vinn ég smá fyrir tónleikahaldarann en ég ætla alveg að vera hlutlaus í þessu svari og segja að þetta voru með langbestu tónleikum sem ég hef séð hvað varðar hljóðfæraleik og framkomu. Ég skil samt alveg þá sem fóru ekki. Fyrirfram hefði ég ekki tímt að eyða tæpum 5 þús í þetta því ég hef lítið sem ekkert hlustað á Frank Zappa.
En treystið mér. Þessir tónleikar fá fullt hús stiga í fjölmiðlum :)
ahh, enga fjandans undirskrift takk :)