Ég tók öll. Mér fannst þau alls ekki erfið, allavega ekki eins erfið og fólk hafði sagt. Mér fannst meira að segja gaman í stærðfræðinni, bara eitt dæmi þar sem mér fannst of erfitt fyrir námsefnið, og ef ég hefði ekki gert klaufavillu (ruglaðist á ummál og flatarmál, bara fljótfærni) hefði ég getað verið hækkuð upp í 10 … Svo er verið að stressa krakka á þessu! Vinkona mín fékk stresskast fyrir prófið, fékk svona black-out og skalf og allt. Ég fékk slæm stress einkenni. Svo gerist ekkert ef maður fellur!