Barn sem fæddist í gær, þann 6.6.06, og vó að auki 6 pund og 6 únsur, hefur verið nefnt Damien eftir aðalpersónunni í hrollvekjunni Omen. Móðir barnsins, Suzanne Cooper, segist hafa haldið í vonina að fæða barnið á þessum degi svo hún gæti skýrt barnið sitt eftir hinum alræmda skrattabarni sem hræddi líftóruna úr kvikmyndagestum árið 1976, og nú aftur 30 árum síðar.

Talandi um töluna sex þá fæddist barnið sex dögum eftir að móðirin var sett af stað.

„Omen er ein af okkar uppáhaldsmyndum og þess vegna hélt ég fótunum mínum krosslögðum svo að ég gæti fætt barnið þann sjötta,“ sagði Cooper, sem er 36 ára gömul, í viðtali við breska dagblaðið The Sun.

„Þetta virðist vera hálf undarlegt en hann er fullkomið barn - alls ekkert líkur Damien í Omen.“

Eiginmaður Cooper, Michael, segir að hann hafi þurft að hafa örlítið fyrir því að sannfæra frúna um að skíra drenginn Damien „en það var viðeigandi sé tekið tillit til dagsetningarinnar,“ sagði hann.

http://www.mbl.is/mm/frettir/erlent/frett.html?nid=1205978

reyndar ekki hægt að taka mikið mark á The sun en ef þetta er satt þá er þetta fólk mjög spes.