Systir mín er búin að vinna í allan dag (6-19) en ég er í fríi svo ég ætla að elda handa henni kvöldmat :) (við erum einar heima) Ég bara veit ekkert hvað ég á að gera … Einhverjar góðar hugmyndir?
Svo hef ég líka ekkert að gera svo mér datt í hug að baka eitthvað. Ég nenni ekki að leita að einhverju í einhverri bók svo mig langar að vita hvort þið vitið um góða uppskrift að snúðum, skinkuhornum eða eithverju þannig. Ekki skúffuköku, ég geri það svo oft :P
Takk fyrirfram