Enn einn Bubba-korkurinn.

Hvernig fannst ykkur tónleikarnir? Ég var þarna, með gæsahúð ALLAN tímann! Váá.. nema þegar Snorri idol var, hann var hræðilegur. Svo hefur mér alltaf fundist ragga gísla leiðinleg, en thats just me. Semsagt, ég var með Bubba gæsahúð allan timann.
Ég bjóst við að þegar ég kæmi heim væri búið að skrifa um það sem hann sagði í byrjun. Fyrir þá sem misstu af því þá hélt hann ræðu um hvað “Draumalandið” væri góð bók, íslensk stjórnvöld væru hræðileg og dagurinn í dag væri gleðidagur því Halldór sagði af sér! Mér fannst það gott hjá honum, sat rétt hjá Óla forseta og er nokkuð viss um að ég sá smá glott koma á kallinn ;)

En allavega, þessir tónleikar munu seint gleymast! & Til hamingju með afmælið Bubbi [liklegt að hann sé að lesa þetta?]