Þjóðgarð, af hverju ekki?
En það eru nú til fleiri og mengunarminni atvinnuvegir heldur en virkjanir og álver sem hægt væri að virkja sem séð gætu sama fjölda fyrir vinnu.
Álver myndi að sjálfsögðu skapa gífurleg atvinnutækifæri en umfangið og kostnaðurinn við að eyða síðan úrgangi er svo mikill að það er vart þess virði svo maður minnist nú ekki á náttúruna sem verður að víkja þegar vatnsvirkjunum eða álverum er plantað þar í staðinn.
Maður spyr sig, eigum við ekki öll, landsmenn, rétt á því að fá að eiga hlutdeild í því að ákveða hvernig landinu er ráðstafað?
En aðalmálið er það að það er bara til svo margt miklu betra og minna umhverfismengandi sem hægt er að gera eitthvað úr.
Ef að álver og vatsvirkjanir væru eini úrkosturinn þá fyndist mér þetta skiljanlegt en staðan er einfaldlega bara ekki sú.
Hvað með t.d. kappakstursbrautina sem á að byggja(svo best sem ég veit), hún hlyti að skapa gríðarleg atvinnutækifæri, hún tæki pláss en ekki eins gríðarlegt landflæmi og vatsvirkjun. Plús það að mengunin væri lítil sem engin miðað við álver.