Það var dálkur hérna um daginn sem var verið að tala um nýjasta Muselagið á þeim tíma, Supermassive Black Hole. Það fékk nokkuð svipaðar viðtökur frá flestum. “Þetta lag er OF QUEER!!”, “Pop? Þetta er pop. Þeir misstu það” o.s.frv. Ég var alveg sammála þeim og mér fannst Muse alveg hafa misst það mikla sem þeir höfðu. Þangað til í dag :D :D :D
Vinur minn benti mér á síðuna
http://www.muse-download.com
þar sem er geðveikt auðvelt að ná í nýjustu lögin og mér finnst þau tvö nýju sem hægt er að ná í bara alls ekki slæm. Starlight minnir mjög á Placebo að mínu mati og þó Placebo sé engin Muse þá er Placebo samt Placebo! Btw, þá er líka hægt að hlusta á fleiri lög sem ekki eru til á plötunum Origin of Symmetry, Absolution og Showbiz, ég veit ekki hvort það séu bara lög sem eru á Hullubaloo. ´
En ég hvet allaveganna alla Muse-aðdáendur að tékka á þessari síðu og segja álit sitt á þessum lögum :D
(Btw, hlustið á lögin svona 3-4 sinnum áður en þið skrifið álit ykkar)