Já, ég er algjörlega sammála þér, hef kynnst nokkrum svona einstaklingum. Mér finnst fátt meira pirrandi en svona dæmi.
Ef fólk þarf að breyta algjörlega um persónuleika til þess að ganga í augun á öðru fólki á það á endanum eftir því að gleyma hvernig það er sjálft.
Það virðist vera eitthvað mainstream dæmi hjá ungum stelpum í dag að þykjast vera voðalegar ljóskur og athyglissæknar, og einnig að vera svona “dirty minded one” þá aðallega til að ganga í augu strákanna, ég skil það vel að strákar fíli svona djarfar “dirty minded” gellur :P en ég sjálfur myndi aldrei detta í hug að byrja samband með einhverri athyglissjúkri gelgju sem þykist vera vitlaus.
Ég sjálfur kýs miklu frekar stelpu sem lætur minna fyrir sér fara og svona, heldur sér innan marka dirty svæðanna :P en er samt ekki algjörlega feimin, og alls ekki heimska :/ gáfaðar, fágaðar, fallegar og “anti-athyglissjúkar en samt ekki feimnar” stelpur eru bara miklu miklu meira aðlaðandi í mínum augum.