Það er Grafir og bein
Textinn er hér:
Brotið nef, blóðið lekur
bölvaður var dæmdur sekur
Vinn' í fiski. verbúðalíf
hjartað vantar varnarhlíf
Hass í pípu, kók á gleri
einman' á köldu skeri.
Kynlífsfíkn, alkahólisti
Á endanum hjartað missti
Sjáðu til, jú ég skil þetta er saga lífs míns, þetta er saga lífs míns.
Þráði ofar, frægð og frama
Samt var allt, við það sama
Þó fíknir mínar allt sitt fengu
frægðin breytti hjá mér engu.
Moldarkeimur fylgir þér maður
myrkrið var líka minn staður
Hol að innan öll við svörum
að okkur hjörtu eru þakin örum
Grafir og bein blasa við þér
Bræður og systur farga sér
Saga mín er saga okkar
saga þín er saga okkar
Sjáðu til, jú ég skil þetta er saga lífs míns, þetta er saga lífs míns
Þeir dauðu muldra ofurlágt:
Þetta er saga lífs míns.