Silvía Nótt er frábær en ef hún heldur áfram verður þetta leiðinlegt. Mér finnst samt flott að hún hafi klárað þetta dæmi til enda og eftir allt Eurovision-vesenið ætti hún að hætta þessu. Ég vil sjá Ágústu Evu í fleiri persónum og ég vil líka að Silvía Nótt sé persóna sem maður getur munað eftir eins og hún er núna, hún er á toppnum (og botninum) og það er besti tíminn til að hverfa, einmitt þegar mest er talað um hana.
Ég vil líka sjá viðtöl við Ágústu Evu og vita hvernig henni sjálfri líður, fá að heyra hennar nafn en ekki bara persónuna hennar.