Issspissss …
Bílasalar eru sendiboðar heljar og til baka …
Þeir leggja skratta mikið á ýmsar druslur - en bjóða svo “aukaafslátt” ef hitt og þetta gerist - eða gerist ekki, en þeir eru ekki að tapa neinu og við höldum að við séum að græða grimmt.
Þeir ákveða að bíldrusla eigi að kosta t.d. 700,000 kr - en auglýsa/selja hann á 770,000 kr - og í kaupauka ef þú kaupir bílinn á næstu þrem dögum færðu 70.000kr í bensínúttektir = 700.000kr eins og þeir voru búnir að ákveða + 70.000kr sem þú borgar aukalega en færð bensínúttektina (sem þú nota bene borgaðir sjálfur fyrir)…
Bíll á 770.000
Bílasalinn fær sínar 700.000
Þú færð 70.000 (til baka) sem bensínúttekt
Þeir gefa manni það sem maður er þegar búinn að borga fyrir sjálfur - hvílík hjartagæska …
Kveðja:
Tigercop sem heyrir margar ljótar sögur af munni bílasala - í heita pottinum í sundlauginni - þar sem þeir eru að gorta yfir því hve auðvelt er að plata/svindla á Jóni og séra Jóni úti í bæ í bíla málum … hugsanlega eru þó ekki allir bílasalar undir sama hattinum og heiðarlegir karlar þar innanum.