True blindness is not wanting to see.
Sumarið er hér!
Ohhh já!! Ég stend úti á svölum! Dauf lyktin af grasi, plöntum, heitu andrúmslofti, blandast saman í yndislegt mix af von og fegurð og ég fæ ótrúlega þægilega og mollulega tilfinningu í magann, tilfinning sem segir mér að þetta sé bara byrjunin á tímabili yndisleika og spennu, fegurðar og lotningar, brjálaðan leik tilviljana, vinskaps, ástar, og tilfinninga! Ég finn lyktina af sumrinu, og öllu því mikilfenglega sem fylgir!