Vinur minn hendir alltaf rusli þótt að við séum 100metra í skólann og í næsta rusl. Ég segi honum samt alltaf að hann geti bara drullast til að halda á þessu í 1 mínútu. Þá er ég ekki að tala um svona smá drasl.. heldur stundum stórar umbúðir utan um eitthvern mat, stærra en t.d. svalaferna.
Hann hendir alltaf flöskum og segist þar af leiðandi vera að styrkja fátæklingana.
Rökin fyrir að hann hendi rusli eru þau að hann sé að skapa vinnu fyrir fólk…