Einhver búinn að sjá nýjasta lost? Shit sko.. þessu bjóst ég aldrei við! Síðustu 3 mínúturnar eða eitthvað af þættinum, sat ég með galopinn munninn og gat ekki hreyft mig.. Ég bara trúi ekki að þetta hafi gerst.
Hann var með tárin í augunum, ég held að þeir hafi hótað honum eitthvað sambandi við Walt, svo hann myndi gera þetta eða eitthvað.. Hann drap fyrst Anna Lousie, en ég held hann hafi skotið Libby bara því honum brá og var í sjokki þú skilur.. En bara mín ágiskun :) En ég er samt ekki viss hvort hann hafi skotið sig.. Því hann beindi byssunni ekki alveg að sér.. ég meira að segja horfði á endan tvisvar til að vera viss, þannig ég bara.. hef ekki glóru.
Ég held mjög líklega að þetta hafi verið hótun. Það sást að hann var með tárin í augunum og þetta tók rosalega á hann og svona.. Svo er það mikið meira drama þú veist, drepa manneskju/r, ljúga að vinum sínum, allt svona gegn hans vilja bara til að bjarga syni sínum (þeas ef það er ástæðan fyrir að hann er að gera þetta). Eða allavega ég held það :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..