Ég sé að þú ert farinn að skrifa aðeins betur en venjulega og er farinn að vona að þú farir aðeins að íhuga “þinn gang”.
Hvað foreldra þína varðar já, ég veit ekki hvort ég eigi að trúa þér eða ekki, en ég kýs að gera það. Og fyrst foreldrar þínir enduðu ekki nógu vel ættir þú að taka þá sem dæmi um hvað þú ættir ekki að verða. Og ef þú varst eitthvað að reyna að mýkja mig og reyna að láta mig vorkenna þér, tókst það því miður ekki. Ég get einfaldlega ekki fundið til með þér þar sem ég veit ekki hver þú ert eða jafnvel hvort þú ert og þú gætir allt eins verið að ljúga að mér.
Hinsvegar með lögregluna er ég alls ekkert með innantómar hótanir, reyndar er ég alls ekki með neinar hótanir, heldur viðvaranir.
Það er ólöglegt að stela/fá lánað/nota kennitölur annara í svona lagað og lögguni er kannski skítsama um það, en ég býst við að Símanum sé það ekki, og þeir geta farið með þetta mál fyrir dómstól (með Zophonias og ef þú segist ekki vera hann er þetta mál úr sögunni, en ef svo er þá veistu hver hættan er og getur allavega ekki sagst ekki vita að þetta væri bannað).