Áðan greip ég gosflösku úr ísskápnum þegar ég kom heim, labbaði inn í herbergið mitt, hellti gosinu í glas og settist við tölvuna.

Dágóður tími leið þar til að ég lyfti glasinu upp og bragðaði á gosinu.. en að lokum gerðist það og mér brá allsvakalega þegar ég bjóst við að finna hið magnaða Kóka Kóla bragð leika við tungu mína.. en nei, fjandinn, þetta var Pepsi og ég frussaði öllu á mig þegar ég fann skrítið bragð af “kókinu” mínu. :(

Ekki halda að það sé kók í Pepsiglasinu ykkar krakkar.