Ég veit að þetta á heima á “Fræga Fólkið” en þar fær maður samtals svona 3 svör við því sem maður sendir inn.

Kevin Federline heldur því fram að hann hafi gefið Locks of Love hluta af hárinu sínu, en það eru samtök sem hjálpa börnum með krabbamein og hvítblæði.

Þegar hann var spurður hvort hann hefði gefið hár sitt af hjartagæsku sagðist hann hafa gefið það til þess að auglýsa nýja geisladiskinn sinn og vonaðist til þess að fleiri myndu kaupa hann út á þetta.

Sko, í fyrsta lagi, hvað er þessi maður að gefa veikum börnum ógeðslega fituga hárið af hausnum á sér? Viðtakandinn hefur örugglega sagt “Thanks, but I already have cancer, I don't want to look like a douchebag, too.”

Og í öðru lagi, er ekki í lagi með hann? Maður notfærir sér ekki veikindi barna til þess að auglýsa geisladiskinn sinn! Maður segir heldur ekki að það hafi verið tilgangurinn, það á örugglega enginn eftir að kaupa hann núna.

Þvílíkur hálfviti.