Aðfaranótt laugardags svaf ég í mesta lagi 4 tíma, aðfaranótt sunnudags svaf ég sirka 7 tíma, aðfaranótt mánudags veit ég ekki hvað ég svaf mikið, aðfaranótt þriðjudags svaf ég aftur 4 tíma og vaknaði klukkan 7 svo ég var orðin helvíti þreytt þegar klukkan var orðin 10 á þriðjudagskvöldi og ég var búin að eyða síðustu 3 tímum í ökuskólanum. Þess má geta að þetta er í fysta skipti sem ég vakna eftir 9 síðan á sunnudaginn í síðustu viku.