Veistu, svona könnun og þær kannanir sem koma venjulega á forsíðukorkana eru kannanir sem eru með svo mörg mismunandi svör að það er ekki hægt að troða þeim í svarmöguleika við einni könnun.
Og veistu, þessum könnunum er ekki hafnað núorðið. Ég hef sjálfur reynt að senda eitthvað inn á forsíðuna, fyrir nokkrum mánuðum var könnun frá mér hafnað og ég sætti mig við það. En núna er liðinn nokkur tími síðan ég sendi inn könnun og hef hvorki fengið játun né afsvar. Þannig að það er ekki hægt að kenna því um að þeir fái afsvar og ákveði bara að skella þessu á korkana.
Og ég held að það skipti voðalitlu máli þó sumir séu pirraðir á þessum þráðum. Það er varla til sá þráður sem allir eru ánægðir með og pirrast ekki yfir að einhverju leyti, en það er til fólk sem pirrast ekki og ég held að það ætti nú að taka meira tillit til þeirra.