Ég hef verið að spá í einu undanfarið, og því meira sem ég spái í því, því meira pirrast ég. Af hverju get ég ekki flogið?
Hvers konar vonska er það að halda mannfólkinu á jörðinni þegar allt þetta pláss er laust í himninum? Ég er ekki að tala um eitthvað himnaríkisbull, ég vil bara geta synt um himininn eins og hann væri vatn.
Ég veit ósköp vel að til eru flugvélar og fleiri því um lík tæki, en það er ekkert það sama. Það er bara eitthvað svindl.
Ég vil geta flogið!