Ég er með ofnæmi á báðum augum, ég var að upplifa fyrstu framfarirnar í fjóra daga. Augun hafa verið blóðhlaupin (sást varla neitt í hvítt) og ég hef þurft að opna augun með höndunum því augnlokin eru alltaf föst saman á morgnana. Húðin er öll bólgin í kring og rauð (augnlokin eru tvöföld og ég er komin með poka undir augun og lít út fyrir að hafa elst um mörg ár). Ég þarf að bera í augun tvær gerðir af dropum, gel, krem og taka inn pillur oft á dag. Til að bæta ofan á það þá er ég líka með varaþurrk og lít þessvegna út eins og liðið lík.
Ég er að fara að fermast á laugardaginn og átti að fara í myndatöku í dag en varð að fresta henni…ég veit ekki hvernig þetta fer, vonandi verður mér batnað þá.
So don't tell me you're having a bad day!!