Þá erum við greinilega ekki á sama plani, hvað varðar það að leyfa fólki að gera það sem það andskotans vill. Það er ekkert nema nöldur og hótanir sem fólk fær hérna á þessum korkum sem eru misnytsamlegir eða þarfir í augum fólks.
Þú verður bannaður þetta lengi, þú ert þetta, þú ert hitt. Maður spyr sig hvort fólk hafi hreinlega ekkert annað betra við tímann sinn að gera en að nöldra og tyggja sömu tugguna aftur og aftur.
Ég segi þetta núna og það einu sinni vegna þess að mér hundleiðist það þegar fólk er með svona hótanir og nöldur. Sem þetta komment náttúrulega er í sjálfu sér en á svo miklu meira rétt á sér en flest nöldrið hérna, að mínu hæstvirtu mati, takk fyrir.