Ég veit ekki hvort einhver ykkar hefur séð nýja auglýsinguna frá Sirkús “Yfirtakan hefst í apríl”. Það er víst eitthvað nýtt flopp* að fara hefjast í apríl á sirkússtöðinni. En er þetta einhver rappþáttur? En ég kannaðist við einn gaurinn og ég veit að hann er rappari og oft með gagnrýni á DV.
Er verið að segja mér að Rappararnir ætli núna að taka við eftir hnökkunum? Ekki er öll vitleysan eins segi ég bara.
*Dauðadæmdur þáttur sem á eftir að valda usla.