Í skólanum er STÓR hluti af unglingadeildinni sem sleppur við hálfan skóladaginn oft, þar sem þau eru í leiklist.
Miðvikudagar hjá mér eru allt í lagi og eru íþróttatímarnir sem bjarga þessu, en nei útaf leiklistaliðinu þá var sleppt íþróttatímanum okkar.
Það er ekki einu sinni eins og ég hafi verið spurður hvort ég vildi taka þátt, notabene meira en helmingurinn að bekknum er í leiklistarkjaftæðinu.
Að vísu hefði ég örugglega ekki farið í leiklistina nema til að losna við skólann, en nei ég er náttúrulega ekki spurður.