Jamm, þá gætu t.d. þeir sem hafa keypt sér alla þessa nýju Porsche sportbíla sem ég er að sjá á götunni notað þá eitthvað…
Ríkið myndi samt aldrei gera eitthvað svoleiðis, það myndi hins vegar kannski gefa leyfi fyrir einhverjum ákveðnum hraða, nú eða ótamörkuðum, innan svona brautar sem einhver einkaðili myndi leggja sæi hann sér hag í því.
Þetta er jafn asnalegt og að vilja opna fleiri skotsvæði svo að fólk sé ekki að skjóta hvort annað. Það á ekki að þurfa að opna svona svæði svo að lögum sé framfylgt.
Þarna… Hverjum ætlaru að senda þetta? Sendir ekkert ríkinu þetta frekar en þú sendir því kvörtun um að það vanti fleiri ísbúðir. Það er ekkert ríkisins að sjá um þetta.
Þetta er hlutur sem að þú verður að sjá um sjálfur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..