Ehm… Þetta er kynlíf, sama hvað þau eru að gera. Ef þau æsast kynferðislega þá tengist þetta kynlífi. Alveg sama þó að þú æsist ekki kynferðislega við þetta. Allt sem æsir fólk kynferðislega tengist kynlífi. Sama hvort þú fílar það eða ekki. Ekki fíla ég að drekka blóð við samfarir, en ef fólk er að því, afhverju ætti ég þá að standa upp og segja “Þetta er ekki kynlíf, mér finnst það ekki!”
Ef þú ert að tala um þegar einhver tekur blóð einhvers án leyfis, þ.e. hálfgerð nauðgun, þá er það nú samt alveg tengt kynlífi. Þó að það sé refsivert að beita þannig ofbeldi á fólk skil ég ekki hvernig þannig hlutir tengjast ekki kynlífi. Venjuleg nauðgun tengist kynlífi. Ég er ekki að segja að nauðganir séu réttlætanlegar, því að þar er ráðist að næsta einstaklingi. Á meðan fólk er samþykkt og gerir þetta af eigin vilja, hvað sérðu að því annað en að þú munt aldrei persónulega gera þetta sjálfur vegna viðbjóðs?