Þetta er verkefni sem skólar panta handa, langoftast 8 bekk, þetta eru dúkkur - strákar, stelpur, svartar, hvítar, asíu.. hvernig sem er.
Krakkarnir fá sérstakt armband sem þau geta ekki tekið af sér, sem passar við skynjara inni í dúkkunni. Þau fá svo dúkkuna með sér heila helgi, kviknar á henni kl 8 á föstudagskvöldinu, hún lætur eins og ungabarn, grenjar þegar hún vill eitthvað. Annaðhvort, borða, leika, láta vagga sér, eða ropa. Maður þarf að vakna með henni á nóttunni og svona.
Bara til að gefa manni smjörþefinn af því hvernig er að hafa börn