Báðar þessar síður sökka. Sérstaklega þó blog.central síðan, þvílíkur vibbi! Ætlar fólk ekki að læra að það er forljótt að hafa oversized stafi í bloggum, því textinn fer allur í eina klessu? Svo hata ég svona gelgjuleg og stutt blogg, pirrandi.
Niðurstaða: lærðu að blogga.
Annars er blog.central flottara í heildina, ég er með síðu þar, meiri möguleikar, flottara útlit, auðvelt að hafa nokkra notendur, könnun, teljari, og margir skemmtilegir aukahlutir. Eini gallinn við blog.central er langt lén, því www.blog.central.is/eitthvad er lengra en www.folk.is/eitthvad …