Sælir, Ian Anderson er að koma hingað til lands í sínum sinfóníu pælingum. Hann tekur samt sem áður gamla góða efnið með Jethro Tull í e.t.v nýjum búningi.
Hann hefur alltaf verið kenndur við ótrúlega sviðsframkomu en þó svo að hann sé að verða sextugur kallinn þá er hann helvíti fjörugur á sviði og nær vel til fólksins.
Ég mæli með því að allir sannir rokkáhugamenn fjölmenni í höllina því fólk hefur verið að bíða eftir þessu lengi..
Endilega kíkið hérna inn, hérna er fyrirkomulagið á sinfóníu conceptinu hans:
http://www.j-tull.com/news/orchestral.html