Eins míns liðs, þá varði ég Palestínsk skólabörn á leið í skólann frá tug Ísraelskra hermanna, með vatnsglasi og bamburstöng. Ég er tilbeðinn af konum, og þaulreyndur í ástarmálum, enda Amour endurholdgaður í allri sinni dýrð.
Spekingar koma til mín, þegar mikið reynir á, ég hef alltaf lausnir- líka þegar það eru engar lausnir.Ég get spilað á gítar með annarri hendi, saxófón með hinni, og á óbó með neðri kjálkanum. Ég get haldið niðri í mér andanum í lengri tíma en þú, og ég get drukkið heilt glas af vatni án þess að sulla, í miðju teygjustökki.
Þetta er svona með því helsta sem ég hef afrekað.
“Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir”