Þó að hann sé varaforseti Bandaríkjanna þá er þetta týpískt veiðislys sem fjölmiðlar notfæra sér til þess að geta komið með áberandi fyrirsögn eða “Varaforsetinn skaut mann…”
Maður bjóst við einhverju spennandi eins og að hann hefði skotið af skammbyssu í miðri stórborg eða að þetta hafi verið sjálfsvörn í miðri manndrápstilraun á Cheney. En já svona týpískt slys þar sem enginn dó finnst mér ekki vera merkileg frétt þó að það var varaforseti Bandaríkjanna var ábyrgur fyrir slysinu.
Hefði allavega orðið aðeins kræsandi ef hann hefði fengið hjartaáfall eftir á og þurft einnig að fara með sjúkrabílnum :D Eða það hefði verið öfugt og varaforsetinn hefði fengið skotið í sig.