Uss, DV alltaf svo seinir með fréttirnar, við skrifuðum um þetta á
Gameover.is fyrir
4 dögum síðan. Sussususs.
Annars,
Gaming Steve hefur víst öruggar heimildir fyrir því að þessi leikur sé í bígerð og hafi verið undanfarin fjögur ár. Leikurinn átti að vera nálægt því að vera tilbúinn á einum tímapunktu en Blizzard voru ekki nógu ánægðir með gripinn og tóku þeir á það ráð að færa skrifstofur Blizzard North niður til Irvine (frá San Fransisco) svo þeir í höfuðstöðvunum gætu haft betra eftirlit með gripnum. Vinnsla á leiknum ætti þá enn að standa yfir og er óvíst hvenær Blizzard þora að segja eitthvað um leikinn. Ég býst sjálfur ekki við að heyra neitt fyrr en í fyrsta lagi seinna á þessu ári, það gæti þess vegna verið á næsta ári.