Já, ég trúi þessu. Besta vinkona mín síðan í leiksskóla er enn besta vinkona mín þó að það sé svolítið skrýtið því að við erum báðar jafn þrjóskar og rífumst út af öðru hverjum hlut. Eldri systir mín eignaðist sínar bestu vinkonur þegar hún var 3 eða 4 ára og nú eru þær þrjár vinkonurnar tvítugar og enn óaðskiljanlegar eftir nánast tvo áratugi, sama er að segja með yngri systur mína.
Ef maður eignast góða vini fyrir 12 ára aldurinn þá mun maður halda þeim. En góður vinur er ekki góður vinur nema hann reynist manni í raun.