Allir þeir múslimar sem ég hef séð tjáð sig í fjölmiðlum á Íslandi hafa verið frekar hófsamir og góðir, sérstaklega formaður múslimafélagsins (eða hvað þetta heitir). Vertu bara ósammála þeim án þess að kasta skít í þá. Ef við sem þjóð komum fram við múslima sem annars flokks fólk þá er það hvetjandi fyrir þá til að fara út í öfga og jafnvel uppreisn. Þeir eru allavega ekki að brenna fána hérna, ekki hella olíu á eldinn þannig að það verði þannig í framtíðinni.
Ég er meira að segja ósammála þeim. Ég tel að það eigi að virða menningu til baka og leyfa Dönum að gera skopmyndir af hverju sem er, Mohammed og co engin undantekning. Það voru ekki múslimar sem gerðu þetta og þeir þurfa ekki að fara eftir kóraninum sem segir að það eigi að virða þessar persónur. Múslimar eru búnir að blása upp málið þannig að margfalt fleiri eiga eftir að sjá þessar myndir, boycotta bara blaðið en ekki sækja um refsiaðgerðir hjá Sameinuðu Þjóðunum (og svo telja allir að vesturlandabúar séu of ákafir í að vísa miðausturlöndum til SÞ).