Ég skil ekki af hverju fólk hlær svona mikið af David Hasslehoff. Þessi maður er án djóks, ég endurtek án djóks karlmennska í hnotskurn. Stór og stæðilegur, loðin bringa, kröftugur líkami og að ógleymdu því að hann hefur hæfileika á nánast öllum sviðum. Hann getur leikið, og hann getur sungið, því getur enginn neitað.
Hann bjó til þætti þar sem fólk gat fengið að horfa á konur í bikinum og sundfötum án þess að vera kallaðir pervertar, þessi maður hefur gert svo margt fyrir okkur að það er alveg ótrúlegt.
Ég segi að þið hættið þessum fordómum og dæmið manninn út frá því sem hann er, karlmennskan uppmáluð.