sko, ég er green day maður einnig, sá þá í fyrra live og var mjög ánægður með þá tónleika. eins og sagt var hér áður hafa þeir þroskast og eftir american idiot er live show-ið þeirra flottara og betra.
og þetta hefur gerst hjá fleiri stjörnum að þeir snappa og ráðast allt í einu á eitthvern (kannski ekki svona mikið eins og billie joe). t.d. björk hefur gert það þegar hún hrinti frá sér blaðamanni, roger waters í pink floyd var næstum því búinn að ráðast á mann á tónleikum sem var að bögga hann…
svo er hann billie joe líka mjög viðkvæmur maður, sem hefur þurft að þola margt í sinni æsku… og plús það að þegar maður er að spila í hljómsveit er ekki gaman að fá skítköst á sig…
en ég er þó sammála að þetta var fullmikið hjá honum, en stundum missir maður bara stjórnina og gerir eitthvað sem maður sér eftir…