Ég var í fatapóker hjá vini mínum - að sjálfsögðu bæði stelpur og strákar, og svo var ég orðinn heldur léttklæddur, var bara á brókinni og á sokkunum, hehe, og ein stelpan var eitthvað álíka léttklædd. Svo heyrðum við í bíl renna hjá, það var mamma vinar míns. Tveir af krökkunum fóru fram og útum svaladyrnar - hálfnakin bæði. Vinur minn sem bjó þarna var eiginlega í öllum fötunum, hann fór rólegur inní stofu og settist þar eitthvað slakur bara.
En ég og vinkona mín, vorum að flýta okkur í fötin, hún var bara í bol og brók, og svo með eitthvað handklæði vafið utan um sig. Ég var ber að ofan, í engum sokkum, en í brók og klæddi mig svo í gallabuxurnar, og beltið hékk svona utan á og buxnaklaufin opin.
Þá kom mamma hans inn og við vorum eitthvað að flýta okkur og panikka og svona klædd! Þetta leit allt öðruvísi út en þetta átti að líta út.
Við tvö þarna, hálfnakin, móð og bara tvö inní svefnherbergi…*flaut flaut*
Þetta leit svoooo illa út eitthvað og ég skammaðist mín svo mikið og vissi ekkert hvað ég átti að segja þegar hún spurði hvað við höfðum verið að gera…