Ég ætla að nöldra, gaman af því.

Það vill svo ótrúlega ömurlega til að það er strákur sem ég þekki bara ágætlega (frændi minn) og er bara fínasti strákur, gerir engum neitt.

Hinsvegar eru strákarnir hérna svo óþroskaðir og hata hann fyrir að geta fengið hvaða stelpu hérna sem er og gjörsamlega refsa honum fyrir það, tala illa um hann, koma af stað lygasögum og þess háttar leiðindi.

En nú fóru þeir yfir strikið, þeir brutust inná síðurnar hjá honum og gjörsamlega rústuðu þeim! Og þeim fannst þetta ótrúlega fyndið.

Það sem mér finnst voða kaldhæðið við það er það að þessi strákar sem rústuð síðunni hans og e-mailinu er sú að þetta eru sömu strákar og var líka fyrir nokkrum árum rústað e-mailum þeirra og heimasíðum og þessir strákar voru þá næstum því farnir að grenja (ekki bókstaflega, tek bara svona til orða) Þeir gerðu allavega þvílíkt mál útúr því og kærðu til lögreglu, svo eru þeir að gera það sama við strák sem hefur ekki gert þeim neitt!

Djöfull er ég pirruð, þoli ekki þegar fólk þarf að láta svona og getur bara ekki látið fólk sem það líkar ekki við í friði.