Það virðist vera núna í tísku hér að rakka niður þá sem gera korka hér. Hvað er málið með ykkur? Þurfið þið endilega að vera svona sorgleg?

Þetta eru bara korkar sem lifa í 1-2 daga og hvaða máli skiptir það ykkur ef einhver fær hér 2 stig fyrir að búa til kork. Ég meina hvaða afskiptasemi er þetta í ykkur öllum. Ég segi bara hingað og ekki lengra. Ég sjálfur var með hugmynd um að láta taka stigakerfið í burtu. Auðvitað bjóst ég við mótmæli útaf því.

Spurningar sem koma í kollinn minn núna varðandi um þetta mál er:

Hvernig korkar eruð þið oftast að lesa?
Hvernig korka má ekki hafa hér?
Er búið að afnema lýðræðið í landinu.
Ég veit að sumir korkar ganga stundum útí öfgar og algjöra ósvaraverðuga vitleysu, en hvers vegna eigum við að vera að skipta okkur að því. Það væri bara frekjuskapur. Við getum ekki sagt mönnum skrifaðu þetta og gerðu þetta alveg eins og ég vill hafa það. Það ráða allir hvernig þeir eiga að hafa sína korka. Annars er verið að skerða tjáfrelsi okkar. Stigin fyrir mér skipta engu máli. En af hverju er fólk svona afbrýðissamt ef maður hefur fengið tvö ný stig og kannski 4 í viðbót fyrir kork sem skiptir heldur ekki neinu máli.

Ég meina væri þessir korkar seldir í áskrift þá er kannski vel skiljanlegt að þú ágæti lesandi sért ekki ánægður með það sem þú varst að kaupa.

En fyrst þetta er opinn tjávöllur þá hlýtur öllum að vera heimilt að tjá sig hér um hvað sem er ekki satt?

Mér finnst svo glatað að svona smámunaseggir einsog þið flest eruð hér eru að dirfast að láta svona útaf 2 stigum.

Sumir grínararnir hér segja að þeirra aðalmarkmið í lífinu sé að ná einhverju áhveðnu stigi hér. Gangi honum/henni þá bara vel við það.

Hættið bara þessu barnalegu frekjuskap endar er nóg af stigum til enda er enginn að fara taka ykkur þau stig sem þið eruð þegar búinn að fá.

Þið fólk sem eruð kallað stigahórur, hunsið bara þetta fólk. Það veit greinilega ekkert í sinn skapaða haus hvorteðer endar hágrenjar það alltaf útaf einhverju svona þvælu sem skiptir engu máli.

Reyndar eru allir korkarnir lélegir hvorteðer og verða á endanum gleymdir einsog þessi korkur.

Ég græddi tvö stig fyrir þennan og ég bara fagna því. Mér er alveg sama hvort einhver hérna ætlar að samgleðjast mér yfir því eða fara sömu leið með barnalegu öfundsýkina.


Fvs fékk 2 stig *grenj*
Af hverju fæ ég ekki líka 2 stig. *búúhúhúúúuuu*
Af hverju fékk fvs tvö sig en ekki ég *grenj* *snökt* *snökt* *ooorg*

Sjáið þið ekki heimskuna í þessu kjaftæði núna?

Þetta rifrildi ykkar um stigagjafirnar er eitthvað það barnalegasta frekjustælar sem ég hef orðið vitni að hér og ég segi bara skammist ykkar.