Ég veit nú alveg slatta um Skoda, og hef keyrt bæði VW Golf og Skoda Octavia mjög mikið og það er svo mikið af þessum smáhlutum sem eru alveg eins..
Útlitslega: Handbremsuskaftið, stýrisstillingarnar, armpúðinn sem er á milli framsætanna (meiraðsegja eins brotinn í Golfnum hjá mér og Skodanum), stýrið, miðstöðvarstjórntækin, miðstöðvarblástursdæmadótið í framrúðunni, rúðustjórnunardæmið, stjórntækin á sætunum, innréttingin í sama stíl o.fl.
En já ég er enginn sérfræðingur í Skoda, en ég veit að þeir eru að nota vélar framleiddar af VW, og ég veit líka að Skoda eru að reyna að rífa af sér þetta vonda orð sem þeir voru með á sér og eru þar af leiðandi með hærri gæðastaðla en VW verksmiðjurnar.
En ég nenni ekki að tala meira um VW og Skoda við þig Gunni :þ