Eldgömlum smellu/joggingbuxum sem að ég fékk af frænda mínum, sem fékk þær af öðrum frænda mínum sem fékk þær frá einhverjum öðrum. Verst að teygjan er að verða ónýt. Einhverri peysu sem mér áskotnaðist frá einhverjum. Sportver sokkar frá vinnunni hennar mömmu. Gráum “Great balls of fire” boxer nærbuxum. St. Anger bol sem ég btw fékk gefins af því að mér finnst Metallica skemmtileg, ekki til að vera eins og allir aðrir. Fékk þennan bol fyrir “löngu” síðan.
Það er svo yndislegt að vera ekki háður einhverri merkjavöru eða þurfa að vera eins og tískan segir manni að vera. Og nei ég er ekki einhver “rebel” eða neitt svoleiðis. Fylgi minni “eigin” tísku sem að er oftast efst í hillunni/skúffunni í fataskápnum.
Afhverju viltu samt vita þetta? Og afhverju fannst mér svona gaman að segja frá þessu?