Ég var bara að horfa á bíómynd í töllunni og var að taka því rólega og ég hallaði mér aftur í stólnum og helvítis stólinn rann undan mér og ég er núna með óþolandi hálsríg sem ég næ ekki að losna við!!!!! Fjandans drasl!
gamli stóllinn minn brotnaði alltaf þegar ég hallaði mér afturábak =/ eða bakið sko datt alltaf af. djöfulsins ikea drasl! og sá sami stóll lét mig detta á andlitið þannig að tvær framtennur brotnuðu - sem betur fer voru þær barnatennur en samt þessir stólar eru verk djöfulsins segi ég núa bara! =/ hehe
HAHA gerist alltaf fyrir vini mina er buin að henda þessum stól nuna i betri stól bara svo fyndið var alltaf að segja vinum minum að halla sér og þeir eru svo heimskir að gera það!!!!=)=)
Sat einhvern tíma á fundi og var að halla mér á stólnum sem ég sat á. Helvíti bakið tekur þá upp á því að brotna hreinlega af og ég hryn í gólfið. Nokkrar góðar skrúfur standandi út úr sem skáru mig alveg vel í bakið.
Ég hef aldrei getað setið á stól síðan þetta gerðist. Treysti þeim einfaldlega ekki. :P
haha þetta hefur oft gerst við mig á gamla stólnum mínum, þá var eitt dekkið dottið af svo hann hallaði alltaf og ef maður hallaði of mikið þá bara *PÚMM*
Það var geðveikt gaman :D Svo sá maður sjálfann sig svona í sleglinum við hliðiná detta í gólfið :D Það er snilld!
Það var kona hérna á Íslandi sem fór í mál við búðina eða fyrirtækið ( ég man ekki ) vegna þess að hún datt af honum og sagði að þetta ætti ekki að gerast eða eitthvað. Og fékk tvær milljónir fyrir það.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..