Þar sem ég er reykingarmaður sjálfur finnst mér þessi nýju lög beinlínis útí hött.. Ég get ekkert annað sagt en að þetta sé bein árás á það littla frelsi sem maður hefur í þessu landi.
Þegar maður fer að ræða við fólk núna um þetta og segja frá sínum skoðunum varðandi þetta mál þá er einfaldlega haldið því fram að *allir* reykingarmenn séu þessi steríótýpa: gular tennur, gulir puttar.. þið kannist öll við þetta..
EN, ég veit það fyrir víst að það eru EKKI allir reykingarmenn svolleiðis.. ég sem dæmi tek tillit til annars fólks sem ekki reykir.. ég bíð frekar þar til komið er út af veitingarstað í staðin fyrir að reykja ofaní annað fólk og margir af mínum vinum sem reykja gera hið sama.. Af hverju er verið að banna okkur þetta?
Það er ekki eins og við séum að henda 10 tonnum af rusli á götuna! ég geng oftast frá stubbum í ruslatunnur(eftir að hafa drepið í að sjálfsögðu) eða finn næsta öskubakka..

Það sem fer mest fyrir brjóstið á mér er það að það vilja voðalega fáir standa með okkur í þessu.. Ef að stjórnvöld geta bannað reykingar á almannavegi, hvað er næst?!?

Ég mæli eindregið með því að halda einhverslags mótmæli hið fyrsta! Þeir sem hafa áhuga að vera með eru eindregið beðnir um að senda mér mail á: majik12@hugi.is .. það verður eitthvað að gera!
majik12