Bent úr Bent og 7Berg, Öryrkjabandalaginu og XXX Rottweiler Hundar. Dóri DNA úr Bæjarins Bestu, Öryrkjabandalaginu og NBC. Móri Atvinnukrimmi. Allt rapparar.
Já þessi atburður er verulega sorglegur á alla staði. Helvítis aular að brjótast inn í húsið, einmitt þegar flytja á í nýtt húsnæði. Vona að gítarinn þinn komi í leitirnar og að þessir helvítis aumingjar fái sína refsingu.
Já ég líkti þessu samt við kærustu vegna þess að hún er ekki blóðskyld manni (allavega fíla ég ekki að hafa þær blóðskyldar), maður getur alveg fengið sér nýja þó að notkunin á þeim verði oft svolítið persónuleg. Það er þessvegna sem mér finnst það svipað og gítarar, maður getur alveg fengið sér nýjan, keypt og selt þá notaða og svoleiðis þó að það séu oft alveg einhver tilfinningatengsl.
Líklegast af sömu ástæðu og áður sem er alls ekki sú að ég hafi verið í nevolution þegar þessi síða var gerð. Ætli þeim finnist ég ekki bara svona fallegur.
Ég vona að fólk geri sér grein fyrir því að þessi gítar mun finnast fyrr eða síðar, þetta er ekki eitthvað sem maður geymir undir rúmi endalaust og ég mun aldrei hætta að leita. Ef einhver hefur keypt hann verður hann að gefa sig fram því löglega er þessi gítar minn og þegar hann finnst mun ég fá hann. Ég get hinsvegar séð til þess að sá sem hefur keypt hann muni fá peningana sína aftur, þessi þjófnaður verður kærður nema gítarnum verði skilað í óaðfinnanlegu ástandi og án alls vesens.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..