Thetta sannar ad thad verda mjog liklega ekki hvit jol aftur i rvk.
Þetta er náttúrulega bara með því kjánalegra sem ég hef nokkurn tíma heyrt, en af því að það er nú aðfangadagur jóla, þá ætla ég ekkert að fara neitt nánar út í það. :)
Annars var ég sjálfur að vonast eftir afskaplega hvítum jólum í ár og það kviknaði smá vonarneisti í gærmorguna, þegar ég vaknaði og allt var skjannahvítt úti fyrir. Aftur á móti reiknaði maður allt eins með því að það rigndi í nótt þannig að það eina sem maður gat í rauninni gert er að taka bara þá ákvörðun að maður ætli að njóta jólanna þrátt fyrir að veðrið sé ekki upp á sitt besta. Og það ætla ég svo sannarlega að gera. Ég fæ góðan mat og nóg af sætindum og eflaust slatta af pökkum líka, og síðast en ekki síst þá fæ ég að verja smá gæðatíma með fjölskyldu og vinum. Þá get ég verið ánægður. :)