Oj! Ég þoli hana ekki heldur, uss uss ógeðslegasti matur sem aðeins Íslendingar eru stoltir af og svo er það alltaf að kynna þennan viðbjóð fyrir útlendingum sem ég skammast mín fyrir. Enginn furða að Oprah fékk klígjukast þegar Svanhildur kynnti fyrir hana þorramatinn okkar.
Þessi Skata virkar á mig einsog Fear Factor viðbjóður.
Það er kominn nútíma hefð hjá mér líka að kaupa Pizzu eða heitan mat einsog grillaðan kjúkling í staðinn.
En þetta þýðir það að ég þarf að fara í sturtu aftur á morgun til að ná af mér lyktinni sem verður í kvöld.
En pælið í þessu. Bara af því að einhverjir íslenndingar gerðu þetta í gamla daga þá þurfum við að skapa hefð og éta þetta rusl.
Einhverntíman í framtíðinni á eftir að koma ný íslensk hefð þar sem Pizzur og skyndibitamatur verður alltaf hafður á hátíðsdögum af því að íslendingar átu það alltaf í gamla daga.
Ég þekki ekkert annað land sem hefur mat sem er etið af gömlum siðum.