Já ég get sagt þér hverjir The Beatles eru.
Bítlarnir (The Beatles á ensku) eru oft taldir vera ein áhrifamesta popphljómsveit sögunnar, þó sumir telji það ofmat. Hljómsveitin er í hópi þeirra vinsælustu sem uppi hafa verið. Hún er upprunnin í Liverpool í Bretlandi og á rætur sínar að rekja til hljómsveitarinnar The Quarry Men, sem var stofnuð af John Lennon árið 1957. Skömmu síðar gekk Paul McCartney til liðs við hana, og svo George Harrison, Stuart Sutcliffe og Pete Best. Hljómsveitin gekk undir ýmsum nöfnum næstu árin, t.d. Johnny and the Moondogs, The Silver Beatles og vorið 1960 voru hljómsveitarmeðlimir farnir að kalla sig Bítlana. Í upphafi var The Quarry Men eitt af skiffleböndunum í Liverpoolsenunni en þroskaðist frá því og þegar þeir slógu í gegn snemma á sjöunda áratugnum spiluðu þeir kraftmikla popptónlist sem þá þótti nýstárleg. Fyrsta breiðskífa þeirra Please Please Me kom út árið 1963 og tónlist þeirra hélt áfram að þróast allt þar til yfir lauk árið 1970, þegar síðasta plata þeirra kom út, Let it be, en samstarfi þeirra var þá þegar lokið og upptökurnar á plötunni voru gamlar.
Allt frá því að fyrsta platan kom út árið 1963 og þar til sú síðasta kom út árið 1970 samanstóð hljómsveitin af fjórum meðlimum, John Lennon, sem spilaði á gítar og söng, Paul McCartney, sem spilaði á bassa og söng, George Harrison, sem spilaði á gítar og söng stöku sinnum, og svo trommaranum Ringo Starr (Richard Starkey), sem einnig söng örfá lög. Langflest lögin voru samin af John og Paul.
Bítlaæðið hófst í kjölfar útgáfu fyrstu plötu þeirra í Bretlandi árið 1963, en snemma árs árið 1964 komu Bítlarnir fram í The Ed Sullivan Show í Bandaríkjunum. Bítlaæðið fór í kjölfarið eins og eldur í sinu um heiminn.
Bítlarnir gerðu tilraunir með hugvíkkandi lyf á sjöunda áratugnum og gáfu út plötur sem unnar voru undir áhrifum lyfjanna. Ber þar helst að nefna „Magical Mystery Tour“ og „Sgt. Peppers Lonely Hearts Club Band“.
Hljómsveitin framleiddi einnig nokkrar kvikmyndir, sú fyrsta var A Hard Day's Night og í kjölfarið fylgdu Help!, Magical Mystery Tour, Heimildarmyndin Let It Be og teiknimyndin Yellow Submarine, sem Bítlarnir komu nánast ekkert nálægt.
[breyta]
Breiðskífur
* Please Please Me (1963)
* With the Beatles (1963)
* A Hard Day's Night (1964)
* Beatles For Sale (1964)
* Help ! (1965)
* Rubber Soul (1965)
* Revolver (1966)
* Sgt. Pepper's Lonely Hearts Club Band (1967)
* White Album (1968)
* Yellow Submarine (1969)
* Abbey Road (1969)
* Let it Be (1970)
Smáskífur
* “My Bonnie” (1962)
* “Love Me Do” (1962)
* “Please Please Me” (1963)
* “From Me To You” (1963)
* “She Love's You” (1963)
* “I Want To Hold Your Hand” (1963)
* “The Beatles Christmas Record” (1963)
* “Sweet Georgia Brown” (1964)
* “Cry For A Shadow” (1964)
* “Can't Buy Me Love” (1964)
* “Ain't She Sweet” (1964)
* “A Hard Day's Night” (1964)
* “I Feel Fine” (1964)
* “If I Fell” (1964)
* “Another Beatles Christmas Record” (1964)
* “Ticket To Ride” (1965)
* “Help !” (1965)
* “Day Tripper” (1965)
* “The Beatles Third Christmas Record” (1965)
* “Paperback Writer” (1966)
* “Eleanor Rigby” (1966)
* “Pantomime: Everywhere It's Christmas”(1966)
* “Strawberry Fields Forever” (1967)
* “All You Need Is Love” (1967)
* “Hello, Goodbye” (1967)
* “Christmas Time (Is Here Again)” (1967)
* “Lady Madonna” (1968)
* “Hey Jude” (1968)
* “The Beatles Sixth Christmas Record” (1968)
* “Get Back” (1969)
* “Ballad Of John And Yoko” (1969)
* “Something” (1969)
* “The Beatles Seventh Christmas Record”(1969)
* “Let It Be” (1970)