Kona Gísla heitir Auður. Alveg eins og ég! Nema hún var Vésteinsdóttir. Bróðir hennar hét líka Vésteinn, ef ég man rétt. Vésteinn, Gísli, Þorgrímur og Þorkell ætluðu að ganga í eitthvað fóstbræðralag en það gekk ekki upp af því að Vésteinn vildi ekki ganga í fóstbræðralag með Þorgrími og þá vildi Þorkell ekki vera með Vésteini og þá varð Gísla ljóst að þetta gengi ekki upp, svo myndi fara sem einhver hafði spáð fyrir.
Ég gæti skrifað um þessa bók í allt kvöld en ég hef annað að gera áður en ég fer að sofa svo ég kveð í bili.
Þetta með nafnið mitt var ekki stór opinberun, allir sem hafa skoðað notendaupplýsingar um mig geta vitað hvað ég heiti…