Zkari:
Þú hefur svo núll efni á að vera að kalla einhvern einmanna, ert tuttugu og eitthvað ára gamall gaur sem hengur á Huga, kemur með lélegar sögur af sjálfum þér og hannar lélega tölvuleiki
Býrð örugglega ennþá heima hjá mömmu þinni og hefur aldrei verið með konu
Jæja Zkari
Það er tími til kominn að leiðrétta þig aðeins:
Þú hefur svo núll efni á að vera að kalla einhvern einmanna, ert tuttugu og eitthvað ára gamall gaur sem hengur á Huga
Ég er að verða 29 ára 10 desember.
Ég kom hingað eftir að núlleinn.is hætti. Þannig að ég er fyrrum núlleinnari hehehe. Ég kom bara áður hingað einstöku sinnum en kaus að vera frekar á núlleinum.is En eftir að það hætti hef ég hemsótt þessa síðu æ oftar. En hérna get ég vistað myndir ókeypis og fylgst með næstum öllu og svo eru oft að finna hér skemtilegar umræður. Þess vegna hef ég mikla ánægju að koma hingað og er furða að þessi vefur er í stöðugri sókn enda með þeim bestu íslensku vefum á Íslandi. Og jú auðvitað mátti ég eiga von á að lenda í þrasi við neikvæða og óþroskaða unglinga en ég kom ekki hingað til að þrasa við neinn.
…kemur með lélegar sögur af sjálfum þér
Ja hérna. Ég hélt að ég hefði séð allt hér. En allt í einu var einhver aðdáandi að koma úr felum (skápnum) sem er búinn að fylgjast með mér og sögunum um sjálfa mig ansi lengi hér.
og hannar lélega tölvuleiki
Alveg hárétt hjá þér. Ég er að verða frekar pirraður á þessu sjálfur hehehe.
Býrð örugglega ennþá heima hjá mömmu þinni
Ég bý hjá mömmu og pabba og ég er ekkert að pirrast né skammast ég mín útaf því enda fínt að fá frían mat og þurfa ekki að borga leigu eins og bróðir minn þarf að gera. En jú ég þarf að fara gera eitthvað við þessu ekki satt félagi?
hefur aldrei verið með konu
Rangt. Ég var með einni á föstu. En hún sagði mér upp. Hún var bara til í einnra nætur samband og ég var bara ekki ánægður með það. En mín kvennamál eru mín einkamál. En þess má geta að í þessari viku þá var ég að leika í atriðum með Stelpunum og þær voru allar að gefa mér auga. Ég er það mikill kvennagull að konur finnast þær vera of ljótar og ekki eiga mig skilið. Það er einmitt vandamálið af hverju mér gengur illa að veiða dömur. Ég er einmitt of sætur fyrir þær. Ég er nefnilega svo mikill krútt að ég hef ekki þorað að mæta í almenningssturtur útaf þessu vandamáli en hommarnir hafa líka verið að gefa mér auga með sömu ástæðu af hverju hehehehe.
Mér líður miklu betur án konu þakka þér fyrir. Ég er nefnilega ekki mikill félagsvera ef þú skilur mig réttilega.
Ég var ekki að reyna að móðga gaurinn sem stofnaði þennan kork en mér fannst bara þessi korkur frekar lame. Að fara að búa til kork til að tilkynna það að Duran Duran lag í útvarpinu er frekar fíflalegt.
En allt í lagi. Gott mál. Duran Duran var í spilun í útvarpinu veiiii. Eru þá allir ánægðir.
Eitt lokaorð. Reynið svo að þroskast þið tveir sem voru að reyna að móðga mig í þessum leiðinlegu hálvitakorki!
Og það þýðir ekkert að fara dissa mig hér. Ég er vanur slíku en greinilega ekki þið. Þið kunnið bara ekki að taka við djóki.
DAK sagði:
nei ég er ekki kvennkyn ég er bara mjög mikill karlmaður
Þú ert með ágætan húmor þarna.