Vá, ég var ekki búin að gera mér grein fyrirþví að jólin séu að koma :/ og svo á maður bara engann pening til að kaupa jólagjafir… hvað eru margir í sömu stöðu og ég?
Me :( Á engan pening þótt ég sé að vinna 2 daga í viku :O Rosalegt … Kaupi bara fáar jólgjafir í ár, annað en í fyrra. Átti endalausan pening og eyddi og eyddi í jólagjafir :D Good times …
ég á alvevg slatta af pening held ég.. var að koma úr verslunarferð. En hugsaði reyndar aðeins of mikið um mitt eigið rassgat. meira segja hirti jólagjöf sem frænka mín átti að fá því hún passaði svo vel í dvd safnið mitt… össs… ég er einmitt að búa til eina gjöf og er búin að búa til eina gjöf og gefa.. það eru flottustu gjafirnar :P enda fara þær til bestu vina minna :P þannig ég er ekki að eyða miklu í jólagjafir sosum
þú ert bara að segja gaurnum að fara..hann bara í góðu chilli að tala um jólin á forsíðuni, og þú segir honum að fara.. hvernig heldurðu að honum líði?
Hah.. “Hvernig heldur þú að honum líði”… Já hann er líklegast búinn að leggjast niður í þungt þunglyndi og mun ekki komast uppúr því í bráð útaf því að hann sagði að þetta var vitlaust áhugamál..
Mér líkar verr við þig heldur en hinn gaurinn :) “ALLA ÞRÆÐI Á RÉTT ÁHUGAMÁL!” styð ég.
Þrátt fyrir að vera algjör eðalkjáni (og þetta ber að skiljast á eins góðan hátt og mögulegt er), þá hefurðu nú oftar en ekki eitthvað til þíns máls að taka.
hvernig er hægt að komast hjá því að vita afþví að jólin eru að koma? whats your secret? I REALLY like to know! ég hef reynt það en ég hef ekki getað komist hjá því. kominnn með ógeð af þessari hátíð :(
Reyndar er leyndarmálið mitt bara margir boltar í hausinn, það ætti að virka :) Eða mörg höfuðhögg, allavega tek ég lítið eftir núna :) var bara fatta t.d. núna að það sé búið að skreyta herbergið mitt :/ og ég sef í því :)
Ef þetta er stigavændi þá er ég kona.. ég þoli ekki þegar sumir kalla allt sigavændi..líklegast þarf maður að koma með einhverja ritgerð til að komast hjá því að vera sigahóra
aðeins öðruvísi staða hjá mér en lítið skárri.. :$
Aðeins HELMINGURINN af familíunni verður saman um jólin og ég verð EINN um áramótin! AFTUR!!! :´(
Er allavega byrjaður á undirbúningi; búinn að sanka að mér jólabíómyndum og -plötum sem ég hef keyrslu á STRAX eftir próf :) Og ENGINN skortur á peningum í fyrsta sinn í meira en 3 ár! :))
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..